þjóðaratkvæðagreiðslur.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún var um margt málefnaleg og mörgu af því sem kom fram í henni er ég mjög sammála. Hún kom hér inn á það sem áðan var til umræðu hjá hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni, er varðaði það að landið yrði gert að einu kjördæmi. Ég vil í því sambandi benda hv. þingmanni á athugasemdir margra landsbyggðarþingmanna um að vægi hinna dreifðu byggða og vægi þeirra svæða sem lengst liggja frá höfuðborginni muni minnka við það. Við erum ein þjóð í einu landi og margir hafa gert athugasemdir við þetta út frá því.
Mig langar hins vegar að beina fyrirspurn til hv. þingmanns: Hver er afstaða hennar til þess að ákveðinn hluti þjóðar eða þings geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu? Er hún tilbúin til að skoða það í nefndinni að það verði tekið inn í fyrirliggjandi frumvarp? Ég gerði ákveðna fyrirvara við frumvarpið og þeir sneru einmitt að því að inn í það vantar þann þátt að ákveðinn hluti þjóðarinnar geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu. Mig langar að spyrja hv. þingmann hver skoðun hennar sé á þeim þætti.