138. löggjafarþing — 25. fundur,  13. nóv. 2009.

tilkynning um dagskrá.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 11 í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram umræða utan dagskrár um áform ríkisstjórnarinnar í skattamálum. Málshefjandi er hv. þm. Bjarni Benediktsson. Fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 3. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í tæpa klukkustund.