138. löggjafarþing — 25. fundur,  13. nóv. 2009.

afskriftir skulda.

[10:46]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Frú forseti. Frá því í byrjun árs hefur Framsóknarflokkurinn talað um mikilvægi þess að ráðast í leiðréttingu á lánum heimila og fyrirtækja og lagt fram tillögur í þeim efnum til umræðu. Þær tillögur fengu vægast sagt óblíðar móttökur hjá sumum stjórnmálamönnum og stjórnmálaflokkum — þú manst eftir þessu, frú forseti — fyrir kosningarnar síðast og svo í framhaldinu. Ýmsu var haldið fram um þessar tillögur, m.a. því að ef ráðist yrði í leiðréttingu á lánum heimilanna mundi sá kostnaður allur lenda á ríkinu. Þetta var fundið út þannig að teknar voru saman heildarskuldir heimilanna, margfaldað með 0,2 — því að þá var verið að ræða um 20% leiðréttingu — og gert ráð fyrir því að allt þetta mundi tapast, eins og að allt mundi ella innheimtast. Fráleitir útreikningar, að sjálfsögðu, og margt annað fráleitt í þessu eins og það að halda því fram að það hefði í raun engin áhrif að leiðrétta skuldir heimilanna.

Nú hefur Viðskiptablaðið , sem hefur reyndar staðið sig ágætlega að undanförnu í að upplýsa um hluti sem ekki hefur verið fjallað um annars staðar, upplýst um að hátt í helmingur skulda heimilanna hafi verið afskrifaður við yfirfærsluna á gömlu bönkunum yfir í þá nýju og þetta hefur blaðið eftir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þetta er í samræmi við það sem Framsóknarflokkurinn hefur haldið fram frá því í upphafi árs og raunar kemur líka fram að skuldir fyrirtækja hafa verið afskrifaðar milli 60 og 70% við þennan flutning. Vel að merkja eru ónýtu lánin eftir í gömlu bönkunum. Því var raunar haldið fram að það væri fásinna að svo mikið væri afskrifað af skuldum heimilanna eins og Framsóknarflokkurinn hafði haldið fram, það bara gæti ekki verið því að þetta væru öruggustu lánin og þess vegna ætti að ganga hvað harðast og lengst eftir þeim.

Nú spyr ég hæstv. fjármálaráðherra þegar þetta liggur fyrir: Er ekki sanngjarnt að þessar afskriftir gangi að einhverju leyti áfram til þeirra sem skulda?