138. löggjafarþing — 25. fundur,  13. nóv. 2009.

krafa innlánstryggingarsjóðs.

[10:57]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég tel ekki ástæðu til þess þegar það liggur fyrir að þarna hefur verið farið að lögum að reikna út þennan mismun sem hv. þingmaður er að kalla eftir. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef er engin skylda til að greiða kröfurnar í íslenskum krónum ef þeim er lýst í erlendum gjaldmiðli. Viðskiptaráðherra hefur lýst þessu og efasemdir hafa komið fram um það. Hann hefur einnig lýst því að sé um einhvern vafa að ræða verði brugðist við því með breytingum á lögunum en ekki hefur þótt ástæða til þess hingað til.