138. löggjafarþing — 25. fundur,  13. nóv. 2009.

samstarf við Færeyinga í aðildarviðræðum við ESB.

[11:02]
Horfa

Siv Friðleifsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta svar. Það er alveg ljóst að Færeyingar eru í mjög sérstakri stöðu af því að þeir eru með takmarkaða sjálfsstjórn en um leið eigin utanríkisstefnu. Þeir standa utan við þau meginutanríkissamtök sem flest ríki eru í samstarfi við, þeir standa meira og minna utan við það allt í dag. Mér finnst því mjög skynsamlegt hjá Færeyingum að hafa sett niður nefnd sem mun skoða framtíðartengsl þeirra á sviði utanríkismála við aðrar stofnanir eins og ESB, hugsanlega varðandi EES-samning, og að ganga í EFTA. Það er allt í deiglunni hjá þeim, ég veit ekki alveg hvað þeir munu velja en ég fagna því að þeir verða áheyrnarfulltrúar í EFTA og það er mjög gott að Íslendingar hafi hjálpað til við að liðka fyrir því.

Ég fagna því að hæstv. utanríkisráðherra sé tilbúinn til þess að veita allar upplýsingar en ég tel að við ættum helst að setja þessi mál í einhvern formlegan farveg og athuga hvort (Forseti hringir.) Færeyingar vilji þiggja mjög mikið samstarf á þessu sviði. Ég held að það sé til bóta fyrir báðar þjóðirnar vegna þessarar sérstöku stöðu í sjávarútvegsmálum og þeirra stóru hafsvæða sem hér liggja undir.