áform ríkisstjórnarinnar í skattamálum.
Virðulegur forseti. Það er brýnt að ná fram í þinginu tillögum ríkisstjórnarinnar í skattamálum til að hér sé hægt að hafa um þær vandaða umfjöllun. (Gripið fram í: Hverjar eru …?) Ríkisstjórninni er nokkur vandi á höndum því að hér þarf að ráðast í stærstu aðgerðir í ríkisfjármálum sem nokkru sinni hefur verið gert og henni ber þess vegna skylda til að leita sem víðtækasts samráðs við aðila í samfélaginu áður en tillögurnar eru lagðar fram svo að skapa megi sem víðtækasta sátt um þær. (PHB: Ekki við stjórnarandstöðuna?) Það mun auðvitað auðvelda okkur starfið hér í þinginu (Gripið fram í: En ekki …) þar sem við hljótum auðvitað líka að leita samráðs við stjórnarandstöðuna.
Ég verð að játa að í þessu mikla og alvarlega verkefni valda upphrópanir, heimsendaspár og framganga stjórnarandstöðunnar yfir höfuð mér nokkrum vonbrigðum. Hér kemur hv. formaður Sjálfstæðisflokksins og segir að skattprósentan skipti ekki máli, heldur tekjustofnarnir. Ég segi við hv. formann Sjálfstæðisflokksins: Það er mikil einföldun því að það er auðvitað hvort tveggja, við þurfum í þessari vinnu að gæta að hvoru tveggja, að því að efla verðmætasköpunina en líka að því að það þarf að auka álögurnar. Hvers vegna þarf að auka álögurnar? Vegna þess að undir forustu Sjálfstæðisflokksins var ráðist í skattalækkanir á kolröngum tíma sem gera það nú að verkum að þær prósentur sem eru lagðar á í sköttum duga ekki til að standa undir þeirri þjónustu sem við þó ætlum að reyna að standa vörð um hér á næsta ári.
Þess vegna þarf að huga að hvoru tveggja, álögunum og því að efla skattstofnana, gæta meðalhófs og leita sem víðast fanga, leggjast ekki óhóflega á einn stofn þannig að hann skreppi saman og við sitjum eftir með engin verðmæti úr þessum leiðangri. Það er sú vandasama vegferð sem við okkur blasir.
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir líka: Við getum gripið til tímabundinna töfralausna sem gera það að verkum að við þurfum ekki að taka erfiðar ákvarðanir. Við getum bara farið inn í lífeyrissjóðina, tekið þar peninga og þá þurfum við ekki að kalla aftur óraunhæfar skattalækkanir síðustu ára. Og þá bara munu tekjurnar aukast rosalega mikið.
Þetta hygg ég að sé nokkurt óraunsæi vegna þess að það verkefni sem við okkur blasir er auðvitað þess eðlis. Það er alveg rétt hjá formanni Sjálfstæðisflokksins að í gegnum erfiðasta tímann er mikilvægt að leita leiða til að afla tekna sem ekki fela í sér varanlegar skattahækkanir. Ef það er hægt að gera að einhverju leyti með því að nýta styrkleika okkar, til að mynda í séreignarsjóðunum, er það auðvitað mjög jákvætt. En það þarf líka að fara í álögurnar, það þarf líka að taka hinar erfiðu ákvarðanir, það þarf líka að horfast í augu við það að við Íslendingar höfum lifað um efni fram. Við þurfum að stilla okkar sameiginlega sjóð, ríkissjóð, af þannig að þar geti tekjur og gjöld innan nokkurra ára mæst. Staða ríkissjóðs gegnir lykilhlutverki í því að efla verðmætasköpun í landinu, staða ríkissjóðs er grundvöllur lánshæfismats landsins og þar með allra öflugustu fyrirtækjanna í landinu, grundvöllur þess að þau geti fengið fjármagn, grundvöllur þeirra vaxtakjara sem þau njóta, grundvöllur fjárfestinga hér og eflingar á tekjustofnunum. Þess vegna, ef menn hafa ekki kjark til að taka erfiðar ákvarðanir um það að auka álögur, verður ríkissjóður aldrei nægilega sterkur til að standa undir því lánshæfismati (Forseti hringir.) sem við þurfum hér fyrir íslenskt atvinnulíf.