áform ríkisstjórnarinnar í skattamálum.
Virðulegi forseti. Vinstri stjórn Vinstri grænna og Samfylkingar ætlar að verja velferðarkerfið og auka jöfnuð í samfélaginu til að skapa eftirspurn eftir innlendum vörum og þjónustu. Fyrir atvinnulífið skiptir öllu máli að skapa skilyrði fyrir nýsköpun. Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins hafa í gegnum tíðina beitt hagstjórn sem felur í sér skattalækkanir á góðæristímum og skattahækkanir á samdráttartímum. Hagstjórn hægri manna hefur þannig magnað upp allar hagsveiflur og kollvarpað með reglulegu millibili fjárhag fjölskyldna í landinu. Sífellt lægri skattar á fjármagnseigendur, einkavæðing og afnám eftirlits á undanförnum árum breytti íslenska hagkerfinu í spilavíti sem endaði með ósköpum.
Frú forseti. Á útrásartímabilinu voru skattar lækkaðir á fyrirtæki og fjármagnseigendur, persónuafsláttur frystur á sama tíma og tekjuskattsprósentan var lækkuð. Þannig var skattbyrði láglaunafólks þyngd í miðju góðæri og skattbyrði hátekjufólks létt. (Gripið fram í.) Ójöfnuður innan EES-svæðisins jókst mest hér á landi. Fjármagnið flæddi úr landi þrátt fyrir skattalækkanir. Þessu viljum við vinstri græn breyta og leggjum til stighækkandi skatt þannig að skattar og tekjur undir 330.000 lækki. Við vinstri græn viljum fara blandaða leið niðurskurðar og skatta til að koma til móts við kröfu AGS um hallalaus fjárlög á næstu árum, kröfu sem eru í litlu samræmi við dýpt fjármálakreppunnar hér á landi en skilyrði fyrir lánveitingu.
Virðulegi forseti. Þrátt fyrir tekjuskattshækkanir eða svokallað skattabrjálæði tókst Svíum og Finnum að vinna sig út úr fjármálakreppunni á örfáum árum án þess að leggja niður norræna velferðarkerfið og án þess að draga verulega úr lífskjörum almennings. Í dag eru Svíar og Finnar enn meðal ríkustu þjóða heims og hafa náð meiri jöfnuði en flestar aðrar þjóðir.
Virðulegi forseti. Við vinstri menn og konur ætlum að nota skattkerfið til að jafna tekjur. Sýnum samstöðu, jöfnum kjörin.