138. löggjafarþing — 26. fundur,  16. nóv. 2009.

tilhögun þingfundar.

[15:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en til kl. 8 í kvöld. Ef ekki er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta telst hún samþykkt.

Þá vill forseti láta þess getið að hlé verður á þingfundi milli kl. 7 og 8 í kvöld vegna nefndafunda.