138. löggjafarþing — 26. fundur,  16. nóv. 2009.

stjórn fiskveiða.

174. mál
[18:51]
Horfa

Róbert Marshall (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef í sjálfu sér ekki miklu að bæta við það sem ég hef þegar sagt í þessu máli. Ég vil bara fagna þeim spurningum sem hv. þingmaður beinir til mín og er tilbúinn til þess að taka þátt í málefnalegum skoðanaskiptum um það í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd. Ég hlakka sérstaklega til þess.