launabónusar -- Icesave -- umsókn að ESB -- kyndingarkostnaður.
Frú forseti. Ég ætla aðeins að blanda mér inn í þá umræðu sem hér hefur orðið nú þegar, m.a. í tengslum við umsókn um aðild að Evrópusambandinu og tengingu við Icesave-málið sem hér hefur verið vakið máls á. Í því efni langar mig bara til að ítreka það sem þingheimi er að sjálfsögðu kunnugt, að það eru skiptar skoðanir um aðildina að Evrópusambandinu, bæði um aðildina sjálfa og um umsóknarferlið, í flestöllum stjórnmálaflokkum. Það á við um minn stjórnmálaflokk, Vinstri hreyfinguna – grænt framboð. Það þarf ekki að koma nokkrum á óvart að um þetta eru skiptar skoðanir og menn áskilja sér allan rétt til að fylgja eftir sjónarmiðum sínum þegar niðurstaða yrði fengin. Það var gert í stjórnarsáttmálanum.
Ég var í hópi þeirra þingmanna Vinstri grænna sem studdi það að við sæktum um aðild að Evrópusambandinu vegna þess að ég tel mikilvægt að við förum í gegnum þetta ferli, að við leiðum það til lykta og það verði þjóðin sem gerir það. Ég styð það að þetta ferli verði gengið til enda. Um það eru ekki allir sammála í mínum flokki og við teljum eðlilegt að þau sjónarmið fái að koma fram í samfélagsumræðunum. Það er það sem við erum að verða vitni að núna.
Varðandi tenginguna síðan við Icesave-málið er hér talað mikið um að Evrópusambandið, Bretar og Hollendingar hafi farið illa með Íslendinga. Já, þau hafa ekki verið okkur hjálpleg í þessum atriðum en gleymum því ekki að Íslendingar bera ábyrgð á Icesave-skuldbindingunum. Það eru Íslendingar sem fóru út í heim, stofnuðu til þessara reikninga og settu þessar skuldir á okkar herðar. Eigum við ekki að taka á þeim?
Þá vek ég athygli á því sem ég sagði í upphafi þessarar umræðu um launabónusana í bankakerfinu o.s.frv. sem núna eru sagðar fréttir af. Ég beindi þeirri umræðu meðvitað ekki til neins einstaks þingmanns. Ég hvatti til samstöðu allra þingmanna til að taka á þeim málum, m.a. með lagasetningu. Ég vildi hlusta eftir því hvort einhverjir (Forseti hringir.) fyndu hjá sjálfum sér að taka undir með mér og ég bíð eftir viðbrögðum, m.a. úr herbúðum stjórnarandstöðunnar, (Forseti hringir.) hvað það varðar.