138. löggjafarþing — 28. fundur,  18. nóv. 2009.

þjónustusamningur við Ríkisútvarpið ohf.

136. mál
[14:37]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Þjónustusamningur ríkisins við Ríkisútvarpið kom í kjölfar þess að lögum um Ríkisútvarpið var breytt og stofnuninni breytt á sínum tíma í opinbert hlutafélag og þjónustusamningur gerður fyrir árin 2007–2012. Þetta var auðvitað stór breyting á Ríkisútvarpinu, að breytast úr stofnun í opinbert hlutafélag. Mér skilst að á sínum tíma, eins og hv. þingmaður og fyrirspyrjandi, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, þekkir vafalaust kvenna best, hafi þetta verið hugsað þannig að þjónustusamningurinn væri ákveðið tæki sem ætti að þróast áfram og þetta tímabil ætti að nýta til að þróa þetta samskiptaform ríkisins og Ríkisútvarpsins. Þar er kveðið á um ákveðna þætti sem hv. þingmaður kom inn á í fyrirspurninni, innlent efni, hlutfall milli erlends efnis og hverrar þjóðar það er. Þar er líka kveðið á um að á tímabilinu, áður en samningurinn rennur út í marslok 2012, muni Ríkisendurskoðun hafa eftirlit með því hvort kröfur samningsins hafi verið uppfylltar. Árlega er gert ráð fyrir að samningsaðilar fundi um framkvæmd samningsins og það hefur verið gert.

Hins vegar spila ýmsar breytur inn í þjónustusamninginn. Þar má kannski helst nefna fjárframlögin sem auðvitað hafa verið talsvert til umræðu í þessum sal sem og annars staðar. Afnotagjöldunum var breytt í útvarpsgjald, það breyttist á þessu ári og ljóst var að erfitt yrði að áætla hversu mikið mundi innheimtast hjá einstaklingum og lögaðilum. Ríkisútvarpið fær nú eina fyrir fram ákveðna upphæð fyrir hvert rekstrarár þó að innheimt sé útvarpsgjald.

Ég vil jafnframt minna á að í fyrrahaust var lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið ohf. þar sem m.a. voru tillögur um að takmarka umfang Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Það frumvarp náði ekki fram að ganga eins og mörgum hv. þingmönnum er enn í fersku minni. Í kjölfarið átti að skipa hóp og fara almennt yfir eignarhald á fjölmiðlamarkaði samhliða þessum takmörkunum. Síðan urðu stjórnarskipti og þessi mál hafa frestast en þetta hefur hins vegar verið í skoðun eftir það. Ég hef í minni ráðherratíð skipað hóp sem var sett það verkefni að fara yfir hlutverk og markmið almannaþjónustuútvarps. Sá hópur á að skila af sér í þessum mánuði og ég lít svo á að þar fáum við ákveðið tæki við yfirferð þjónustusamningsins sem verður nokkurs konar eigendastefna ríkisins gagnvart Ríkisútvarpinu.

Ég tel eðlilegt að á sama tíma verði skoðað það sem hv. þingmaður kom inn á í fyrirspurninni sem varðar hlutverk Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Það er reyndar komið almennt inn á auglýsingamarkaðinn í nýju lagafrumvarpi um fjölmiðla sem væntanlega verður lagt fyrir þingið á næstu vikum þar sem umsagnarfrestur um það er liðinn. Frumvarpið hefur verið til kynningar á netinu. Ég held að það skipti miklu máli að þetta sé rætt í samhengi við hlutverk Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og hlut þess þar. Ég hef persónulega verið þeirrar skoðunar, eins og hefur komið fram áður í þessum sal, að það sé eðlilegt að Ríkisútvarpinu sé gert kleift að þurfa ekki að vera á auglýsingamarkaði. Hins vegar hafa sértekjur verið stór hluti af tekjum Ríkisútvarpsins og það þarf einhvern veginn að tryggja rekstrargrundvöllinn til að það geti í auknum mæli dregið sig út af auglýsingamarkaði.

Ákveðin óvissa hefur ríkt í fjármálum RÚV og það hefur auðvitað haft sín áhrif á þjónustusamninginn. Hann hefur verið til yfirferðar í ráðuneytinu um nokkurt skeið og gert er ráð fyrir að þegar endanleg niðurstaða um tekjur félagsins liggur fyrir sé hægt að ljúka þeirri vinnu. Ekki hafa verið teknar saman upplýsingar í heild um hvort öll markmið þjónustusamningsins hafi náðst. Hins vegar liggur fyrir að Ríkisútvarpið hefur uppfyllt mörg ákvæði samningsins þótt erfitt hafi reynst að uppfylla önnur. Ég nefndi áðan t.d. að fylgst er með hlutfalli innlends efnis og norræns efnis og allt slíkt hefur gengið eftir en hins vegar hafa verið áhöld um sum önnur ákvæði og hvort tekist hafi að uppfylla þau.

Ljóst er að Ríkisútvarpið hefur búið við ákveðna óvissu í rekstri sínum og það hefur óneitanlega haft áhrif á það hvernig félaginu hefur tekist að framfylgja þjónustusamningnum. Félagið þurfti að grípa til mikilla sparnaðaraðgerða á síðasta ári með niðurskurði í rekstri um 16% og uppsögnum 7% starfsmanna. Enn þurfti að grípa til sérstakra aðgerða sl. vor til aðstoðar félaginu og það liggur fyrir að þótt rekstrargrundvöllurinn sé tryggður á þessu ári, gangi fjáraukalagafrumvarp fram, verður líka ákveðinn samdráttur á næsta ári. Í þessu ljósi er nú unnið að breyttum rekstrarforsendum Ríkisútvarpsins fyrir næsta ár og það er í raun forsenda þess að hægt er að ljúka yfirferð yfir þjónustusamninginn.