138. löggjafarþing — 28. fundur,  18. nóv. 2009.

kennsluflug.

107. mál
[15:57]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Frú forseti. Mig langar í þessu samhengi að spyrja hæstv. samgönguráðherra: Hver fylgir því eftir að snertiflug sé ekki stundað almennt á flugvöllum sem ekki hafa malbikaðar brautir? Hver fylgir því eftir hvar snertiflug er stundað? Af því að mig skortir þekkingu og hæstv. samgönguráðherra nefndi snertiflug, þá langar mig að fá upplýsingar um það.