138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

fasteignamarkaðurinn.

[10:53]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (F):

Frú forseti. Þetta þótti mér rýrt svar og kannski eftir öðru þegar spurt er um hvað eigi að gera til að örva markaðinn og efnahagslífið. Þessi umræða hefur farið fram áður, á sumarþinginu og yfirstandandi haustþingi, þar sem komið var með tillögur en það er eins og stjórnarliðar skilji þær ekki almennilega. Ég veit ekki alveg hvað er á seyði. Mér finnst það að hækka hámarkslán upp í 30 millj. í þessu árferði ekki vera grundvallarbreyting á Íbúðalánasjóði heldur er einfaldlega verið að laga Íbúðalánasjóð að þessum aðstæðum. 30 millj. kr. íbúð er ekki sérstaklega dýr íbúð að mínu mati. Ég held að hámarkslán upp á 20 millj. sé fáránlega lágt. Ég held líka að nú sé lag að afnema stimpilgjöldin.

Hér nefni ég tvær einangraðar afmarkaðar aðgerðir sem hægt er að fara í til að reyna að örva markaðinn. Ég auglýsi eftir fleiru í þessum anda og að ekki sé bara farið í (Forseti hringir.) samráð um samvinnu af einhverju tagi. Það vantar ákvarðanir.