lán frá Norðurlöndum.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa fyrirspurn og líka að hv. þingmaður ætlar að hlusta á svarið við því sem hún spurði um.
Ég held að það sé alveg ljóst og það vita flestir að Norðurlandalánin eru hluti af því efnahagsprógrammi sem við vinnum með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Miklar tafir hafa orðið á láninu og endurskoðuninni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og hvort sem okkur líkar betur eða verr er þetta hluti af því prógrammi.
Icesave var óumdeilanlega tengt þessu máli vegna þess að það losnaði ekki um endurskoðun á áætlun AGS fyrr en búið var að fara yfir Icesave-málið, það komið inn í þingið og samkomulag á milli aðila um að málið mundi ekki þvælast fyrir því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn endurskoðaði sína áætlun. (Gripið fram í.) Ég þarf ekki að skrifa til forsætisráðherra Norðurlanda eða annarra um þetta. Það vita allir að Norðurlandalánin eru hluti af prógramminu og á meðan áætlunin var ekki endurskoðuð fengust Norðurlandalánin ekki afgreidd. Því miður eru málin með þessum hætti.