lög um greiðsluaðlögun.
Virðulegi forseti. Þetta var nokkuð undarleg fyrirspurn hjá hv. þingmanni því að ég man ekki til þess að sérstaklega hafi verið tilgreint loforð um að fasteignamarkaðurinn mundi taka tafarlaust við sér eftir samþykkt þessara laga. Grundvallaratriðið að baki þessari löggjöf var að skapa ráðrúm hjá fólki til að takast á við þær skuldbindingar sem það þarf að standa við og gefa því færi á að borga af lánunum í samræmi við þær forsendur sem stefnt var að í upphafi. Það markmið hefur tekist. Ég sé ekki nokkurs staðar þær tölur af skattbreytingunum núna að þær taki til baka þann mikla ávinning sem af þessu úrræði er, hvorki fyrir heimili með verðtryggð og gengistryggð íbúðalán né fólk með gengistryggð bílalán. Greiðslubyrði er að léttast umtalsvert.
Það lá alltaf fyrir, og það veit hv. þingmaður, að á næsta ári kæmi í okkar hlut að inna af hendi til ríkisins í auknum mæli til þess að loka því gati sem er á ríkissjóði vegna óábyrgrar skattstefnu Sjálfstæðisflokksins á undanförnum árum þar sem sköttum var létt af þeim sem best voru í stakk búnir til þess að borga þá og skattbyrðin flutt markvisst á þá sem minnst höfðu milli handanna. Eftir stendur ríkissjóður sem hefur engar forsendur til að vera í jafnvægi, jafnvel á jafnvægistímum. Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að veikja svo grundvallarstoðir samfélagsins og tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs að mikilla aðgerða þurfti við til að endurreisa getu ríkissjóðs til að afla tekna fyrir nauðsynlega samfélagslega þjónustu. Við erum einfaldlega að taka til í þrotabúi Sjálfstæðisflokksins og það hefur alltaf legið fyrir að við þyrftum að auka skatta (Forseti hringir.) á næsta ári.