framtíðaruppbygging á Vestfjarðavegi í kjölfar dóms Hæstaréttar.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka umræðu um þetta brýna verkefni og ég heyri að mikill samhljómur er hjá þeim sem hafa tekið þátt í umræðunni um veglagningu á Vestfjarðavegi 60 í Gufudalssveit eða óuppbyggðum og ómalbikuðum köflum á þessari leið sem eru, eins og ég sagði áðan, allt of margir.
Ég ætla ekki að bregðast við einu eða öllu sem kom fram hjá þingmönnum. Þó verð ég að segja vegna umfjöllunar hv. þm. Guðmundur Steingrímsson um úrskurð fyrrv. umhverfisráðherra sem taldi umferðaröryggi aðalatriði en Hæstiréttur sagði síðan að viðkomandi ráðherra hefði ekki haft leyfi til að taka tillit til þess, að auðvitað má segja að við töpum málinu fyrst og fremst vegna ákveðins formgalla hjá fyrrverandi hæstv. umhverfisráðherra. Við verðum þó líka að lesa umhverfislögin í þessu samhengi, 3. gr. þar sem hugtakið „umhverfi“ er skilgreint á þá leið að það sé samheiti yfir menn, dýr, plöntur o.s.frv.
Ég ætla ekki að gagnrýna dóm Hæstaréttar, það er endanlegur dómur sem við verðum öll að virða. Þarna er talað um að menn skuli taka tillit til manna, samfélaga, heilbrigðis, menningar, atvinnu og efnislegra verðmæta en þá er auðvitað mjög sérstakt ef ekki má fella úrskurð og velja veglínu sérstaklega út frá umferðaröryggisatriðum sem mér finnst að þarna hafi legið ljós fyrir. Að fara þessa leið á láglendi eða fara yfir hálsana, þar er mikill munur á.
Í lokin, virðulegi forseti, hvað varðar það sem hv. málshefjandi (Forseti hringir.) talaði um hér í lokin vísa ég í þessa vinnu sem er í gangi. Vonandi ekki seinna en um miðjan desember (Forseti hringir.) getum við aftur sest niður með aðilum (Forseti hringir.) til þess að ræða hvaða möguleikar eru í stöðunni.