138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

2. umræða um Icesave og kvöldfundur.

[11:45]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með síðasta ræðumanni. Það skiptir miklu máli að sérstaklega við þingmenn af landsbyggðinni vitum hvenær umræðunni á að ljúka í kvöld, hvort til standi að vera með næturfund eða hvort fundur eigi einungis að standa fram að kvöldmat. Svo tek ég líka undir að auðvitað er þetta mál þess eðlis og fjárhæðirnar það stórar og miklar að það þarf að velta við hverjum steini. Ef nýjar upplýsingar koma fram á fjárlaganefnd að sjálfsögðu að skoða þær. Ég trúi ekki öðru en að þeir fjárlaganefndarmenn meiri hlutans sem eru í salnum, þeir eru ekki margir, taki heils hugar undir það.