138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

2. umræða um Icesave og kvöldfundur.

[11:59]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Frú forseti. Það er ágætt ef aðstoðarmenn forseta fylgjast með þegar þingmenn biðja um að fá orðið. Ég vil bara halda áfram þessari umræðu. Þótt ég þakki forseta fyrir svörin er ég mjög ósátt við þau. Alþingi Íslendinga getur ekki verið eina stofnunin í landinu sem getur ekki skipulagt vinnutíma sinn. Þetta er nokkuð sem við erum margítrekað búin að gera athugasemdir við, bæði í þessari viku og síðustu. Það var talað um að við ættum að stefna að því að gera þennan vinnustað fjölskylduvænni. Það er hluti af starfsumhverfi okkar í stjórnmálum að við getum skipulagt vinnu okkar og þá hljótum við að geta fengið upplýsingar þar að lútandi frá forseta. Hérna er óskað eftir því að forseti fundi strax, þess vegna núna í hádegishléinu, með formönnum þingflokkanna (Forseti hringir.) og ákveði hversu lengi þessi fundur á að standa þannig að við getum gert ráðstafanir (Forseti hringir.) varðandi fjölskyldur okkar og fundi sem við vorum búin að skipuleggja í kjördæmum á morgun.