ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég þakka sömuleiðis hv. þm. Birgi Ármannssyni fyrir hans ágætu spurningar og hugleiðingar. Við erum sammála um þessa hluti. Réttaróvissan er öll okkar megin, það er alveg sama hvert maður lítur, ef eitthvert ágreiningsmál verður mun vafinn alltaf falla Bretum og Hollendingum í hag.
Það var eitt sem ég komst ekki yfir að fjalla um í ræðu minni, en ég mun gera það þegar ég kemst að seinna í kvöld væntanlega ef meiri hlutinn ætlar að keyra á kvöldfund, og það er hin gríðarlega gengisáhætta sem við horfum upp á, ekki bara varðandi þá tilfærslu og skuldabréfið milli nýja bankans og þess gamla, heldur það að kröfur innstæðutryggingarsjóðs voru gerðar í íslenskum krónum (Forseti hringir.) á meðan eignirnar eru allar í erlendri mynt eða flestar.