138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[17:56]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég sé engan tilgang með að halda umræðu áfram um þetta sólarlagsákvæði vegna þess að hv. þingmaður virðist ekki vilja skilja það.

Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann aftur að því sem ég spurði hann að áðan. Það voru mjög einfaldar spurningar. Af því að hv. þingmaður sagði að þetta væru mjög sanngjarnir samningar og hafði mikil orð um að lengra yrði ekki komist og þar fram eftir götunum, finnst hv. þingmanni þá sanngjarnt að íslenska ríkið taki að sér að greiða á milli 30–40 milljarða vegna þess að við byrjum að greiða vexti frá 1. janúar þó að okkur beri ekki lagaleg skylda til þess?

Í öðru lagi: Finnst hv. þingmanni það vera verðug þóknun fyrir Breta og Hollendinga að greiða sínum umbjóðendum fyrir það þrjá og hálfan milljarð? Finnst honum sanngjarnt að íslenska ríkið eða íslenska þjóðin geri það með þessum hætti?

Frú forseti, þegar hv. þingmaður fer að tala um 2024 ákvæðið og segir síðan í ræðu sinni að Seðlabankinn hafi sagt (Forseti hringir.) að þetta mundi verða allt í lagi — hvers vegna hefur hann þá svona miklar áhyggjur af (Forseti hringir.) að þetta gangi ekki upp til 2024?