ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég held að mikið sé til í því sem hv. þingmaður nefnir, að menn vilji ekki taka til umræðu kjarna málsins og nefni svona hluti til að villa um fyrir mönnum í umræðunni. Maður skyldi samt ekki gefa sér neitt í þessu vegna þess að ég held að það séu margir þingmenn á Alþingi sem raunverulega trúa því að Evrópusambandið muni koma hlaupandi til okkar með fulla kistu af peningum og létta þessum byrðum af okkur einn daginn.
Síðast í dag heyrði ég þingmann halda því fram á göngum þingsins að við mundum örugglega ekki borga þetta þegar allt kæmi til alls. Í þessu birtist auðvitað vilji til þess að taka mikla áhættu á kostnað íslenskra skattgreiðenda og um það fjölluðu fyrirvararnir við Icesave-samningana sem samþykktir voru á sumarþinginu, þeir fjölluðu um þann grundvallarþátt málsins að Alþingi væri ekki tilbúið til að taka áhættu. Icesave-samningurinn sem hæstv. ráðherrar Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon tefldu fram í sumar voru áhættusamningar og nú er búið að breyta þeim samningum að nýju í áhættusamninga. Það er sagt sem svo: Nú skulum við veita ríkisábyrgð fyrir þessu öllu saman og þetta fer allt saman örugglega vel. Meira að segja Seðlabankinn hefur sagt að miðað við þessar og þessar forsendur muni þetta allt saman blessast á endanum og við þurfum ekki þennan efnahagslega fyrirvara og við þurfum ekki þennan lagalega fyrirvara vegna þess að þetta hljóti að reddast.
Þetta er hugsun sem mér er ekki að skapi. Ég tel að við höfum ekki leyfi fyrir hönd íslenskra skattgreiðenda og almennings í landinu til þess að taka neinar slíkar áhættur. Ef okkur standa ekki til boða samningar um niðurstöðu í þessu máli þar sem allir geta (Forseti hringir.) haldið fullri sæmd eigum við að leita réttar okkar.