138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[21:25]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir áliti 1. minni hluta efnahags- og skattanefndar og því verða efnahagsleg álitamál Icesave-samningsins hryggjarstykkið í ræðu minni.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund fulltrúa frá Seðlabanka Íslands, slitastjórn Landsbanka Íslands og skilanefnd Landsbanka Íslands.

Í erindinu frá fjárlaganefnd var þess farið á leit að nefndin tæki til skoðunar tilgreinda þætti málsins sem eru þeir sömu og nefndin var innt álits á við afgreiðslu laga nr. 96/2009 en þó að teknu tilliti til breytinga sem lagðar eru til í þessu frumvarpi.

Við umrædda lagasetningu taldi meiri hluti efnahags- og skattanefndar að íslenska ríkið ætti fárra annarra kosta völ en að takast Icesave-ábyrgð á hendur þar sem lausn deilunnar væri forsenda fyrir efnahagslegri endurreisn. Meiri hlutinn lagði jafnframt til að fjárlaganefnd tæki til skoðunar hvort ástæða væri til að gera fyrirvara um þjóðhagsþróun, þ.e. ef þróunin yrði á þann veg að ríkinu yrði ekki fært að standa undir ábyrgðinni. Þeir efnahagslegu fyrirvarar sem fjárlaganefnd lagði til koma fram í 3. gr. laganna og er þeim ætlað að tryggja að greiðslubyrðin verði ríkinu ekki ofviða.

Fram kemur í athugasemdum við frumvarpið að hinir erlendu viðsemjendur hafi að verulegu leyti fallist á fyrirvara Alþingis með gerð sérstaks viðauka við samningana og að leiðin sem valin hafi verið til að samræma lögin að þeirri endurskoðun hafi falið í sér að gera hefði þurft róttækar breytingar á uppbyggingu laganna.

Fyrsti minni hluti er enn þeirrar skoðunar að lausn Icesave-deilunnar sé forsenda fyrir endurreisn íslensks efnahagslífs.

Í álitinu fjöllum við ítarlega um álit Seðlabanka Íslands frá 9. nóvember 2009. Frumvarpið felur í sér að hámark greiðslubyrði íslenska ríkisins sem gert var ráð fyrir í lögum nr. 96/2009 taki ekki til vaxtagreiðslna og að greiðslutími framlengist sjálfkrafa leiði hámarkið til þess að eftirstöðvar verði enn til staðar í lok lánstíma, 5. júní 2024. Nefndin ræddi hvaða áhrif það gæti haft á skuldaþol íslenska ríkisins og endurgreiðsluferlið að undanþiggja vaxtagreiðslur greiðsluhámarki og fékk í því skyni álit hagfræðisviðs og alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands sem dagsett er 9. nóvember 2009 og er fylgiskjal með álitinu. Þar kemur fram, að gefnum mismunandi forsendum um endurheimtur af eignum gamla Landsbankans, þ.e. 50%, 75% eða 90%, að aðeins í því tilviki að endurheimtur verði með lægsta móti geti vaxtagreiðslur af lánunum orðið hærri en greiðsluhámarkið sem hefur þá í för með sér samsvarandi lengingu lánstíma sem bankinn áætlar tvö ár eða til ársins 2026.

Fulltrúar Seðlabankans tóku fram á fundi með nefndinni að áætlanir bankans byggðust á þróun í efnahags- og peningamálum sem gerð hefði verið grein fyrir í nýjasta nóvemberriti Peningamála. Breytingar sem fram kæmu í þeim áætlunum, miðað við þær sem bankinn byggði á í minnisblaði frá 15. júlí sl., væru innan skekkjumarka, þ.e. frávik frá fyrri spá fælust í því að bankinn reikni með að meðalhagvöxtur á greiðslutímabilinu verði 2,2% í stað 2,5%, þ.e. meðalhagvöxtur, og að raungengi haldist 2,5% lægra en ráð var fyrir gert. Fulltrúar bankans bentu á að samdráttur í kjölfar fjármálahrunsins væri minni en búist hefði verið við.

Þess má geta að Hagstofa Íslands kynnti einnig þjóðhagsspá sína fyrir efnahags- og skattanefnd um sama leyti og þar kom fram að sökum þess að atvinnuleysi er ekki jafnmikið og spáð var, gjaldþrot fyrirtækja er ekki jafnalmennt og menn héldu, tekjur í útflutningi eru miklar í sjávarútvegi og ferðaþjónustu, að öllu samanlögðu er höggið ekki jafnvont og við héldum í upphafi að það yrði.

Í áliti Seðlabankans er lagt mat á núvirði Icesave-skuldbindinganna miðað við tilteknar endurheimtur. Er áætlað að núvirði hreinna skuldbindinga sé 20% af vergri landsframleiðslu ársins 2009 miðað við 75% endurheimtur. Í áliti Seðlabankans er gefin mynd af heildarskuldum hins opinbera bæði með og án Icesave-skuldbindinga. Þar kemur fram, ef skuldir hins opinbera eru skoðaðar í hlutfalli við verga landsframleiðslu, að hreinar skuldir hins opinbera eru í kringum 90%. Án Icesave séu skuldirnar á bilinu 100–110% en með Icesave á milli 120 og 140%, fari svo lækkandi til ársins 2014, þannig að hreinar skuldir fari undir 80%.

Seðlabankinn sýndi einnig samanburð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á skuldum hins opinbera við nokkur ríki en sá samanburður á að gefa til kynna hve miklar viðbótarskuldir ríkin hafa tekið á sig í kjölfar fjármálakreppunnar. Sérstök athygli er vakin á því að íslenska ríkið standi vel að því er varðar framtíðarskipan lífeyrismála.

Svo ég vitni aftur í álit Seðlabankans um spár AGS um skuldir hins opinbera í nokkrum ríkjum, og þá er miðað við hlutfall af vergri landsframleiðslu, kemur fram að eftirfarandi þjóðir munu væntanlega árið 2014 hafa skuldir frá tæplega 90–130% af vergri landsframleiðslu árið 2014. Það eru Bandaríkin, Belgía, Bretland, Frakkland, Grikkland, Írland, Ísland, Ítalía, Japan og Þýskaland. Japan er í sýnu verstu málum með yfir 230%.

Þannig má sjá að skuldir hins opinbera í nokkrum ríkjum, þar með talið Íslandi, að Ísland er þar í hópi fjölmargra ríkja ef spá AGS gengur eftir um hlutfall opinberra aðila af landsframleiðslu árið 2014. Og ég ítreka að lífeyrismálin hér á landi eru í miklu betra horfi en í fjölmörgum öðrum löndum.

Í áliti Seðlabankans er sömuleiðis gerð grein fyrir erlendum eignum og skuldum íslenska þjóðarbúsins. Þar kemur fram að eðlilegt sé við mat á framtíðarhorfum að líta fram hjá skuldum og eignum gömlu bankanna. Sé það gert sé hrein staða þjóðarbúsins við útlönd áætluð mínus 40% í stað mínus 400%, að skuldir séu um 3.300 milljarðar í stað 14.300 milljarða og að eignir séu um 2.700 milljarðar í stað 8.400 milljarða.

Þetta eru raunar hreint ótrúlegar tölur og kannski þeir sem hvað harðast ganga fram í að gagnrýna skuldastöðu ríkisins eða hins opinbera eða Íslands ættu þá að skoða hvernig staðan var árið 2007 eða 2008 því þá voru tölurnar miklu, miklu skuggalegri.

Í töflu 3 í áliti Seðlabankans þar sem erlend staða þjóðarbúsins er skoðuð sést að hrein staða við útlönd var tæplega 6.000 milljarðar í neikvæða stöðu árið 2009, en án gömlu bankanna árið 2009 er talan 600 milljarðar í neikvæða tölu. Við förum sem sagt úr 6.000 niður í 600 við núverandi stöðu þjóðarbúsins. Hrein staða hefur sem sagt skánað úr mínus 400% af vergri landsframleiðslu niður í mínus 40%.

Seðlabankinn telur að teknu tilliti til Icesave og lána sem íslenska ríkinu og Seðlabanka Íslands bjóðist að skuldahlutfall þjóðarbúsins brúttó geti numið um 300% af vergri landsframleiðslu árið 2009. Hrein staða, sem er væntanlega lykilhugtakið í umræðu um skuldastöðu, er bilinu mínus 54% til mínus 71% af landsframleiðslu. En fulltrúar bankans bentu á á fundi nefndarinnar að sú staða sé mun betri en á árunum fyrir hrun.

Seðlabankinn birtir í áliti sínu spá um þróun tekna og gjalda hins opinbera og ríkissjóðs árin 2009–2012 og byggist hún á áætlun fjármálaráðuneytisins. Telur bankinn að með ábyrgri hagstjórn og afgangi af undirliggjandi viðskiptajöfnuði gefist færi á að greiða niður erlendar skuldir. Fulltrúar Seðlabankans tóku fram að þessi viðskiptajöfnuður mundi fyrst og fremst stafa af samdrætti í innflutningi. Spurðir um hagvaxtarforsendur töldu þeir þær ekki óvarlega áætlaðar og bentu á að ýmis tækifæri til gjaldeyrisöflunar gætu skapast eftir því sem hagkerfið jafnaði sig frá hruni. Um mitt ár 2010 væri því spáð að hagkerfið fari inn á braut hagvaxtar.

Þegar maður hugsar um þetta innlegg frá Seðlabankanum fer maður að ímynda sér það tjón sem Icesave-samningurinn hefur nú þegar valdið þjóðarbúinu. Að því leytinu til ættum við að horfa í eigin barm vegna þess að það hefur tekið okkur allt of langan tíma að ganga frá Icesave-málinu með tilheyrandi tjóni fyrir þjóðarbúið.

Fulltrúar Seðlabankans bentu einnig á að Ísland væri ekki á leið í greiðsluþrot þrátt fyrir að erlend skuldastaða væri áhyggjuefni. Í venjulegu árferði þurfi ríki jafnan að endurfjármagna stóran hluta skulda sinna. Dæmi eru þess að vanþróuð ríki með lágt skuldahlutfall hafi farið í greiðsluþrot vegna takmarkaðs aðgangs að lánsfé og í því ljósi skipti miklu máli að stjórnmálamenn beittu sér fyrir trúverðugri efnahagsstefnu. Það er að segja, lykilatriðið í því ef við ætlum að velta því fyrir okkur hvort skuldastaða okkar sé sjálfbær er hvaða ákvarðanir við tökum í ríkisfjármálum, hvernig við komum fram við erlendar vinaþjóðir. Getum við tryggt aðgengi að erlendu fjármagni? Komum við heiðarlega fram við lánveitendur okkar og viðurkennum við mikilvægi þess að virða skuldbindingar okkar? Á því velta öll okkar lífsskilyrði í þessu landi á næstu árum. (Gripið fram í.) Þess vegna er það mikilvægt að við nálgumst þetta Icesave-mál með þau sjónarmið í huga. Eigum við að virða skuldbindingar okkar, (Gripið fram í.) eigum við að koma fram við þær þjóðir sem eru vinaþjóðir og eru tilbúnar til að lána okkur með þeim hætti að þær treysti sér til þess að lána okkur áfram? (JónG: Allt í þágu ESB.)

Af því að hv. þm. Jón Gunnarsson minnist hér á ESB vil ég bara segja það, frú forseti, að ég fordæmi þann málflutning. ESB kemur þessu máli bara akkúrat ekki neitt við. Takk fyrir það.

Mig langar til að grípa niður í álit Seðlabankans þar sem vitnað er til fræðimannanna Reinhart og Rogoff þegar við ræðum um skuldastöðu ríkja og hættu á þjóðargjaldþroti, eins og sumir hafa haldið fram hér í þingsal.

Þar segir, með leyfi forseta:

„Reinhart og Rogoff, 2003, telja að það hversu vel ríkjum hefur tekist við að standa við skuldbindingar sínar og gæði efnahagsstjórnar sem þau hafi beitt hafi áhrif á getu þeirra til að standa undir mikilli skuldabyrði yfir lengri tíma.“

Reinhart og Rogoff kynna hugtakið „skuldaóþol“, sem birtist í þeirri miklu þvingun sem mörg þróunarríki upplifa þegar skuldabyrðin nær tilteknum mörkum sem þykja vel viðráðanleg hjá þróuðum iðnríkjum, er nátengt því að ríki lendi í síendurteknum gjaldþrotum sem mörg ríki hafa lent í á undanförnum árum. Hjá ríkjum með skuldaóþol er skipulag opinberra fjármála yfirleitt lélegt og fjármálakerfið veikburða. Gjaldþrot valda því oft að þessi vandamál verða erfiðari viðureignar en ella sem aftur leiðir til þess að ríkin verði líklegri til að verða aftur gjaldþrota.

Undir venjulegum kringumstæðum endurfjármagna ríki stóran hluta af skuldum sínum ár hvert og fæst ríki eru í þeirri stöðu að geta greitt öll lán sé þess krafist. Til þess að geta endurfjármagnað skuldir sínar verða ríki að geta sýnt að þau ætli að standa við skuldbindingar sínar.

Að lokum er í áliti 1. minni hluta efnahags- og skattanefndar fjallað þó nokkuð um gengisáhættu vegna Icesave.

Nefndin ræddi áhyggjur af því að fjárhæðir innlánskrafna sem íslenski tryggingarsjóðurinn leysir til sín á grundvelli Icesave-samninganna verði umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við skráð sölugengi 22. apríl sl., sbr. lög nr. 44/2009. Fulltrúar slitastjórnar og skilanefndar gamla bankans komu á fund nefndarinnar og gerðu grein fyrir tilurð umræddra laga og stöðu eignasafnsins. Fram kom í máli gesta að meginreglan í gjaldþrotarétti sé sú að við skipti sé unnið í mynt heimalandsins. Hefði krafan ekki verið fest í íslenskum krónum í apríl hefði grundvallaratriðum í gjaldþrotarétti verið kollvarpað og um leið verið vikið frá evrópskum reglum sem gilda um slit fjármálafyrirtækja.

Vissulega er rétt að staldra við gengisáhættuna vegna Icesave. Á það hefur verið bent að tekjur íslenska tryggingarsjóðsins eru miðaðar við íslenskar krónu, þ.e. krafan á bankann, en gjöldin eru í erlendri mynt, þ.e. það lán sem við ræðum nú að gangast í ábyrgð fyrir. Þar af leiðandi er komin gengisáhætta. Veiking krónunnar mun þá hækka gjöldin en styrking krónunnar minnka.

Þar sem miðað er við gengi krónunnar í apríl 2009 hlýtur því lykilspurningin að vera: Teljum við að gengi krónunnar hafi verið veikt eða sterkt þá og eru líkindi á því að það styrkist eða veikist? Flestir telja reyndar að gengið hafi verið mjög lágt skráð þá og í sögulegu lágmarki. Þá er mikilvægt að hafa í huga að styrkist gengi krónunnar frá apríl 2009 er það íslenska ríkinu til hagsbóta.

Þá hefur því verið haldið á lofti að almennir kröfuhafar hafi hag af því að gengi krónunnar sé veikt á næstu árum því þá aukast líkurnar á því að þeir fái eitthvað út úr bankanum þegar forgangskröfum hefur verið sinnt. Á hitt ber hins vegar að líta að aðrir forgangskröfuhafar en íslenski tryggingarsjóðurinn, þ.e. hollenska og breska ríkið, hafa mikinn hag af styrkingu krónunnar næstu árin. Þar sem uppgjör bankans fer fram í íslenskum krónum þarf að lýsa erlendum kröfum í íslenskum krónum og miða þá við gengi krónunnar í apríl 2009. Styrkist svo gengi krónunnar frá apríl fær viðkomandi fleiri evrur fyrir þessa kröfu, sem lýst var í íslenskum krónum þegar hún var greidd, og því hefur sá sami, þ.e. hollenska og breska ríkið, mikinn hag af styrkingu krónunnar vegna þess að þá fær hann fleiri evrur fyrir lýsta kröfu í íslenskum krónum.

Hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson talaði um það í máli sínu fyrr að við gætum alveg eins farið með málið til dómstóla vegna þess að þetta væri svo vondur samningur. Í því sambandi, með leyfi frú forseta, langar mig að lesa upp úr grein í Morgunblaðinu eftir Kristin H. Gunnarsson sem birtist í sumar en þar segir:

„Í Icesave-samkomulaginu segir að í því samþykki Íslendingar að greiða 730 milljarða kr. Er þá enginn munur á samkomulaginu og að tapa málinu fyrir dómi? Svarið er: Jú, víst er munur. Hann er um 520 milljarðar kr. Það eru annars vegar 350 milljarðar sem Bretar og Hollendingar greiða sparifjáreigendum umfram það sem tryggingarsjóðurinn íslenski greiðir og tekur á sig samkvæmt þessu samkomulagi. Hins vegar eru það um 170 milljarðar kr. sem sparifjáreigendur fá ekki bætta hvorki frá Íslendingum né hinum þjóðunum, því að staðreyndin er sú að Icesave-skuld Landsbankans var 1.250 milljarðar kr.“

Svo heldur Kristinn áfram, mér finnst hann orða þetta ágætlega og ég ætla þess vegna að halda lestrinum áfram:

„Verði ekki samið munu dómstólar fá málið til meðferðar. Þar verða gerðar ýtrustu kröfur á hendur Íslendingum. Þar verður þess krafist að allar innstæður allra aðila verði bættar að fullu, samtals 1.250 milljarðar kr. Krafan er í samræmi við það sem Íslendingar gerðu sjálfir. Þeir tryggðu að fullu og öllu allar innstæður í innlendum útibúum bankanna, um 1.400 milljarða. Dómstólarnir þurfa að svara því hvort heimilt var að láta íslenska ríkið ábyrgjast sérvaldar innstæður í bönkunum en neita allri ábyrgð á hinum. Sannast sagna standa sterk rök til þess að íslenska ríkið tapi slíku máli og verði dæmt til þess að greiða ekki bara lágmarkstrygginguna, 20.887 evrur, heldur alla innstæðuna hjá hverjum og einum. Það er 520 milljörðum kr. verra samkomulag.“

Að svo mæltu lýk ég máli mínu um Icesave-samkomulagið.