138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[23:18]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég tek undir með mörgum hv. þingmönnum sem hafa komið hér upp og sagt að þetta væri í raun og veru algjörlega með ólíkindum. Það er tekin ákvörðun um að halda kvöldfund og síðan þegar sú ákvörðun liggur fyrir hleypur helmingurinn af liðinu út, sá helmingur sem greiddi atkvæði um að hér skyldi haldinn kvöldfundur.

Ég vek athygli á því, eins og ég kom reyndar inn á í ræðu minni áðan, að enginn hæstv. ráðherra fyrir utan hæstv. fjármálaráðherra hefur séð sér fært að sitja hér í dag, enginn. Er þetta boðlegt? (Gripið fram í: … Álfheiður …) Já, hæstv. heilbrigðisráðherra kom hér í mýflugumynd í nokkrar mínútur, ég tel það ekki með.

Mig langar að beina þeirri spurningu til hæstv. forseta ef hann vildi vera svo vinsamlegur að svara henni: Mér var tjáð hér fyrr í kvöld af forseta að ef ég mundi ekki byrja ræðu mína fyrir klukkan 10 mínútur yfir 11 kæmist ég ekki að á mælendaskrá. Mig langar að spyrja hæstv. forseta: Stendur sú ákvörðun (Forseti hringir.) enn þá?