138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[23:20]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Mig langar að ítreka spurningu mína síðan áðan og fara þess vinsamlegast á leit við herra forseta að hann svari mér hvort samþykkt frá þingflokksformannafundi standi ekki eða hvort þetta sé einvörðungu einhver geðþóttaákvörðun hjá herra forseta sem nú stýrir fundi að gera þetta með þessum hætti. Mér var tjáð að ef menn kæmust ekki í ræðustól fyrir klukkan 10 mínútur yfir 11 yrði ekkert af því. Það á að ljúka hér fundi klukkan 12 og það er 40 mínútna ræðutími og það gefur algjörlega augaleið að það þarf að ætla a.m.k. 50 mínútur til þess að menn geti haldið hér eðlilegar ræður og fengið andsvör. Stendur þessi samþykkt þingflokksformanna?

Ég ítreka enn og aftur að það er mjög mikilvægt að einhverjir hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn sjái sér fært að vera við þessar umræður Það hefur gagnast mér að hlusta á margan stjórnarandstöðuþingmanninn tala og það hafa komið ný sjónarhorn á málin (Forseti hringir.) fyrir mína ásjónu.

(Forseti (ÁÞS): Nú verður gert fimm mínútna hlé á fundinum.)