lögmæti neyðarlaganna.
Frú forseti. Það virðist almennt vera stefnan í dag að svara engum spurningum. Hæstv. fjármálaráðherra virðist gefa sér það að þó að búið sé að taka nokkra hugsanlega kröfuhafa til hliðar verði hinir mjög sáttir sem fá ekki neitt. Það liggur alveg fyrir og hefur komið skýrt fram á kröfuhafafundi hjá öllum bönkum að helstu kröfuhafar passa sig á að gæta alls síns réttar, gefa ekki neitt eftir og taka ítrekað fram að þeir séu ekki búnir að taka afstöðu til eins eða neins hvað varðar lögmæti þeirra gerða sem eru hjá skilanefndunum. Og það eru skilanefndirnar sem fyrst og fremst hafa samið við fjármálaráðuneytið.
Tveir virtir lögfræðingar hafa komið fram og talað um neyðarlögin. Annar er Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður og hinn Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögum. Þeir hafa lýst yfir áhyggjum sínum varðandi neyðarlögin og ég verð að segja að ég hef miklar áhyggjur að heyra að menn eru fyrst og fremst að hugsa um málaferlin sjálf en ekki að undirbúa áætlun (Forseti hringir.) um hvað við ætlum að gera (Forseti hringir.) ef allt skyldi fara á versta veg, eins og gerðist í október fyrir ári síðan.