138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

lögmæti neyðarlaganna.

[13:59]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Að sjálfsögðu eru kröfuhafar ekki ánægðir með að tapa þúsundum og aftur þúsundum milljarða á Íslandi. Það er með ólíkindum að okkur, þessari fámennu þjóð, skyldi takast á örfáum árum að blása út banka sem urðu að fjórða og sjötta stærsta gjaldþroti sögunnar í viðskiptaheiminum. Það er náttúrlega alveg með endemum en það er veruleikinn sem hér er á borð borinn. Ég þori varla að leggja saman töluna sem stefnir í að erlendir kröfuhafar tapi á bankahruni á Íslandi því að hún er hærri en enn hefur nokkurn tíma verið nefnd opinberlega, það stefnir allt í það.

Þar mun skipta miklu máli hvernig leysist úr samskiptum okkar við þessa aðila vegna þess að geri þeir samninga, gerist þeir eigendur að bönkum, eiga þeir hagsmuna að gæta í því að íslenska hagkerfið rétti úr kútnum og okkur gangi vel. Þá þjónar það ekki þeirra hagsmunum að reyna að setja allt í uppnám með því að vefengja neyðarlögin. Það er hárrétt hjá hv. fyrirspyrjanda að einn og einn kröfuhafi getur verið í annarri stöðu. En það mun muna miklu um það (Forseti hringir.) ef stærsti hópurinn er þannig orðinn tengdur endurreisn í íslensku efnahagslífi að hann á hagsmuna að gæta að bönkunum og hagkerfinu vegni vel (Forseti hringir.) og það dregur úr hættunni á málaferlum af því tagi sem hérna er fjallað um.