138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[15:49]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Þór Saari) (Hr) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir vandaða ræðu og vel reifaða lagalega hlið málsins, því að þessir samningar og þessi ríkisábyrgð eru flókið lagalegt fyrirbæri og ekki á færi hvers sem er að skilja það til hlítar.

Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann spurningar varðandi yfirlýsingu forseta Íslands þegar hann skrifaði undir lögin í sumar. Nú var hún mjög ítarleg og hann rakt nánast í smáatriðum hvað fyrirvararnir hefðu mikið vægi við þá athöfn hans að skrifa undir þessi lög. Þetta eru kannski fyrst og fremst tvær spurningar. Í fyrsta lagi, hvað finnst hv. þingmanni um þessa yfirlýsingu og hlýtur hún ekki að vera í gildi enn þá? Í öðru lagi, er hægt að setja þessa yfirlýsingu í eitthvert lagalegt eða stjórnskipulegt samhengi? Gildir hún enn þá? Gildir hún áfram? Fellur hún úr gildi einhvern tímann, eða hvar stendur sú yfirlýsing með tilliti til þeirra laga sem nú (Forseti hringir.) er verið að reyna að þröngva í gegn?