138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[15:57]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er enn þá í þeirri stöðu að þurfa að svara fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og nú fyrir hönd hæstv. fjármálaráðherra. Hann getur ekki blandað sér í þessi andsvör en hefur auðvitað rétt til að taka til máls í umræðunni, raunar þann rétt að ráðherra getur tekið til máls hvenær sem er í umræðunni og forseti getur hleypt honum að hvenær sem er. Ráðherrar hafa því meira svigrúm en við hin hvað það varðar, þannig að fjármálaráðherra getur komið inn í þetta og gert grein fyrir sínum sjónarmiðum.

Varðandi svigrúmið, minnist ég þess eins og ég sagði í fyrra andsvari mínu að lögð var þung áhersla á það af hálfu ríkisstjórnarinnar í upphafi að við værum komin á endapunkt, og þá er ég að tala um stöðuna eins og hún var í júní og júlí. Þá var hvað eftir annað sagt að málið væri á endapunkti, að búið væri að fara eins langt og hægt væri, að búið væri að þoka málinu eins langt og hægt væri og þarna væri íslenskra hagsmuna gætt til fullnustu. Reyndar breyttist svo afstaða manna við ríkisstjórnarborðið og í stjórnarmeirihlutanum (Forseti hringir.) þegar þeim varð ljóst að ekki var meiri hluti fyrir frumvarpinu eins og það stóð í sumar (Forseti hringir.) og þá allt í einu voru allir mjög hrifnir af fyrirvörum, fyrirvörum sem á núna að þynna út og eyðileggja.