138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[16:53]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég heyri að við hv. þingmaður erum mjög sammála um að það hafi ekkert komið fram við umræðuna um þetta frumvarp sem gefi tilefni til þess að hafa minni áhyggjur eða vera rólegri út af þessu máli en þegar það kom fyrst fram. Allt sem komið hefur fram um þessi mál, bæði í störfum nefnda og eins á opinberum vettvangi, gefur tilefni til að hafa kannski meiri áhyggjur og þyngri áhyggjur af málinu en þegar við lögðum upp fyrir nokkrum vikum síðan.

Ég vildi spyrja hv. þingmann af því hann hefur í gegnum störf sín í efnahags- og skattanefnd haft töluvert meira af því að segja hvernig málsmeðferð hefur verið háttað en ég, hvort hann telji að það séu einhver málefnaleg rök fyrir því að stjórnarmeirihlutinn vill flýta málinu með þeim hætti sem við höfum séð, með því að keyra það út úr efnahags- og skattanefnd og fjárlaganefnd. Eru einhver málefnaleg rök fyrir því eða býr eitthvað annað undir? Eru menn bara að reyna að losna sem fyrst undan óþægilegu máli sem er óvinsælt í þjóðfélaginu eða eru menn einhvern (Forseti hringir.) veginn að reyna að róa Evrópusambandið eða einhverja slíka aðila?