ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Jú, það er alveg viðbúið að þessi slæma skuldastaða læsi gengi krónunnar á því sem hún er í dag og sennilega mun lægra því það er útlit fyrir gríðarlegt útstreymi af gjaldeyri á næstu árum. Seðlabankinn er ekkert að skafa utan af því. Hann er með langtímaspá fyrir raungengið, ég held að hún nái tíu ár fram í tímann, og þar er gengi krónunnar sennilega á bilinu 190–210 gagnvart evru. Það er afskaplega slæm staða og það verður mjög erfitt að standa undir þessum vöxtum, ég tala nú ekki um afborgununum. Það er sú skuldsetning sem skuldugustu þjóðir heims lenda í að þær bisa við að borga eingöngu vexti árum og áratugum saman en losna aldrei við höfuðstólinn.