138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[22:38]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir ágæta ræðu. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að við Íslendingar getum staðið undir umræddum skuldbindingum og hvort að hans mati sé fræðilegur möguleiki að við getum borgað.