138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[22:50]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég get upplýst hv. þm. Kristján Þór Júlíusson um að ég deili algjörlega þeirri skoðun hans með honum og er sammála því að ekki væri til of mikils mælst að ráðherrar ríkisstjórnarinnar og forsvarsmenn þessa máls kæmu í pontu til viðræðna við okkur og létu ekki nægja að sitja og hlusta, annaðhvort í hliðarsölum eða annars staðar, sem ég vona nú sannarlega að þeir séu að gera.

Þetta er, eins og ég kom aðeins inn á í ræðu minni fyrr í kvöld, mjög sérkennileg umræða því við erum hér að reyna að berjast fyrir hagsmunum þjóðarinnar í baráttu við Breta og Hollendinga, umræðan er við stjórnarmeirihlutann og hæstv. ráðherra en þeir taka bara ekki þátt í umræðunni. Ég vildi svo gjarnan að umræðan væri (Forseti hringir.) með öðrum hætti og við reyndum á málefnalegan hátt að finna (Forseti hringir.) bestu leiðina fyrir íslenska þjóð út úr þessum hræðilega vanda.