138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[23:07]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mig langar að kanna hvort möguleiki sé á að lýsa eftir þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Eru þeir allir farnir úr húsi eða er hægt að kanna hvort einhverjir þeirra séu enn hér til að hlýða á næstu ræðu sem haldin er?