samkeppni á fyrirtækjamarkaði.
Hæstv. forseti. Á undanförnum mánuðum hefur orðið gjörbreyting á fyrirtækjamarkaði vegna þeirra atburða sem urðu hér síðasta haust þegar bankarnir féllu. Það er ekki einungis svo að stóru bankarnir hafi komist í hendur ríkisins heldur hafa einnig verið miklar blikur á lofti hjá stöndugum íslenskum fyrirtækjum. Nú er staðan þannig að í mörgum greinum er ríkið orðið þátttakandi á fyrirtækjamarkaði og þá jafnframt komið í samkeppni við fyrirtæki sem enn eru í einkaeigu eða í dreifðri eignaraðild. Auðvitað vonast ég til að þessi fyrirtæki verði sem skemmst í eigu ríkisins og menn leiti leiða til að koma þeim aftur út á almennan markað. Það væri fróðlegt að vita hver sjónarmið hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra eru hvað það varðar.
En meginspurningin sem mig langar til að beina til ráðherrans að þessu sinni er: Telur ráðherra að hægt sé við þessar aðstæður að tryggja betri samkeppni milli þessara ríkisfyrirtækja og þeirra fyrirtækja sem enn eru á markaðnum?
Það hefur verið nokkuð áberandi nú að undanförnu að sum þessara ríkisfyrirtækja hafa verið fyrirferðarmikil á auglýsingamarkaði og í markaðssetningu og hitta þar auðvitað fyrir þá samkeppnisaðila sem kannski eru í erfiðri stöðu, eins og gengur og gerist við þær aðstæður sem uppi eru í þjóðfélaginu. Ég held að miklu máli skipti að ríkið móti sér einhverja stefnu um það hvernig halda eigi á þessum fyrirtækjum á meðan þau eru enn í eigu ríkisins. Virðulegi forseti, ég held að það geti ekki verið hagur ríkisins að þau fyrirtæki sem þessi ríkisfyrirtæki eru í samkeppni við leggi síðan upp laupana og lendi þá jafnvel í höndum ríkisins til viðbótar við þau sem fyrir eru. Ég vona að við getum verið sammála um það að miklu máli skiptir að fyrirtækin í landinu hafi tök á því að vaxa og dafna og komast út úr þeim óróa sem nú er og að þetta sé tímabundið ástand. Þannig að hef töluverðar áhyggjur af þessu.
Mig langar til að spyrja hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra hvort hann hafi líka áhyggjur af þessu og jafnframt hvort einhver stefna sé sjáanleg um það hvernig halda eigi á þessum málum. Við höfum í dag rætt um verklagsreglur í bönkunum og mönnum finnst m.a. að þeim hafi ekki verið fylgt nógu vel eftir. Ég held að miklu máli skipti að um þetta sé dálítið opin umræða. Ég vil þess vegna varpa þeirri spurningu til hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra hvernig hann telur að unnt sé að tryggja samkeppni á fyrirtækjamarkaði nú þegar fjöldi fyrirtækja er á forræði ríkisins.