tilhögun þingfundar.
Virðulegi forseti. Nú liggur fyrir að hæstv. utanríkisráðherra hefur upplýst okkur um að ríkisstjórnin hefur sagt sitt síðasta orð varðandi Icesave-málið. Það sé ekkert tilefni til að taka til máls um það. Það hefur verið sagt sem þurfti að segja skýrt og skorinort í 1. umr. málsins og síðan ekki söguna meir. Hæstv. forsætisráðherra sagði reyndar að hennar tími væri ekki enn þá kominn, hann kæmi kannski síðar og þá mundi hæstv. forsætisráðherra greina okkur frá sínum sjónarmiðum í sambandi við þetta mál.
Mál af þessu tagi þarf auðvitað umræðu við og það er eðlilegt að sú umræða fari þannig fram að menn skiptist á skoðunum. En það virðist eins og ríkisstjórnin sé búin að leggja árar sínar í bát, að hún treysti sér ekki til að ræða þessi mál. Sumir hæstv. ráðherrar hafa að vísu setið yfir þessari umræðu lengur og skemur en þeir hafa hins vegar ekki treyst sér til að stíga í þennan ræðustól til að tjá okkur skoðanir sínar. Nú hefur þess verið farið á leit að reynt verði að fá einhvern starfsfrið um þetta mál, að reynt verði að komast að einhverri niðurstöðu um það hvernig þessi mál verða rædd. Það hefur verið óskað eftir því að þingflokksformenn setjist niður og fundi áður en atkvæðagreiðslan fer fram og ég vil spyrja hæstv. forseta (Forseti hringir.) hvort ekki eigi að verða við þeirri ósk.