138. löggjafarþing — 32. fundur,  26. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[13:02]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í samningunum og viðaukasamningunum og frumvarpinu stendur að árið 2015 verði staðan tekin á því hvernig efnahagur íslensku þjóðarinnar verður. (PHB: Það breytir engu.) Jú, og farið verði yfir þá stöðu.

En, virðulegi forseti, það kemur ekki til greina að ég svari hér fyrir einhvern annan en sjálfa mig.