138. löggjafarþing — 32. fundur,  26. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[15:14]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka enn á ný fyrir spurninguna. Ég held að þessi vinnubrögð séu náttúrlega bara í anda þeirra vinnubragða sem hafa viðgengist í gegnum allt þetta mál. Maður kynntist þessu aðeins í gegnum efnahags- og skattanefnd nú í sumar að þar voru mál ekkert rædd, þau voru bara keyrð út. Það endaði með því að það var að frumkvæði einstakra þingmanna, sem margir voru einmitt í efnahags- og skattanefnd, og annarra sem höfðu áhuga á málinu, að menn tóku sig saman og funduðu, m.a. á kvöldin og um helgar til þess að móta þessa efnahagslegu fyrirvara. Þetta var auðvitað vinna sem hefði átt að fara fram innan efnahags- og skattanefndar. Það að það skuli ekki hafa gefist tími í þessu stærsta einstaka máli Íslandssögunnar til þess að ræða saman innan fjárlaganefndar, þó ekki væri til annars en að fara efnislega yfir þá staðreynd að það skyldu koma fjögur minnihlutaálit út úr efnahags- og skattanefnd, það hefði maður talið (Forseti hringir.) að væri ástæða til þess að alla vega aðeins að taka smákaffibolla, eins og Icesave-samningurinn hefur sagt til um.