138. löggjafarþing — 32. fundur,  26. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[21:44]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mér þætti mjög vænt um ef hægt væri að fá að vita hvenær þingflokksformannafundur verður haldinn hér á eftir. Því var lofað að þingflokksformannafundur yrði í kvöld til að fá skýrar línur um það hvenær þessum fundi verður slitið í nótt. Ég skora á hæstv. forseta að gefa okkur einhver svör um það hvenær af því verður.