138. löggjafarþing — 33. fundur,  27. nóv. 2009.

ræðutími í óundirbúnum fyrirspurnum o.fl.

[11:18]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Frú forseti. Það er ástæða fyrir því að þingsköpin eru eins og raun ber vitni, þ.e. 63. gr., þar sem forseta er fengið það vald að geta breytt dagskránni, tekið mál út af dagskrá o.s.frv. Það er vegna þess að forseti ber ábyrgð á því að þingstörf gangi eðlilega fram og við í minni hlutanum í þinginu höfum með ábyrgum hætti sagt við meiri hlutann: Vegna þess að sá tími styttist óðum sem við höfum til ráðstöfunar til að ganga frá fjárlögum, sem eru mjög mikilvæg, teljum við að það eigi að gera allt sem hægt er í þingsalnum til að tryggja að slík mál fari áfram, fari til nefndar og fái eðlilega umfjöllun, að við gefum okkur eðlilegan tíma til þess en höldum síðan áfram að ræða Icesave-málið, að sjálfsögðu. Það er ekkert athugavert við það. En við skulum sameinast um að láta þessa hluti ganga rétt fyrir sig og úr því að stjórnarmeirihlutinn er ekki tilbúinn til þess hefur forsetinn samkvæmt 63. gr. þingskapa heimild til að taka fram fyrir hendurnar á meiri hlutanum (Forseti hringir.) og grípa til þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar eru til að þingið geti sinnt skyldu sinni, sem er að ganga frá fjárlögum á réttum tíma. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)