ræðutími í óundirbúnum fyrirspurnum o.fl.
Frú forseti. Fyrir þessum þingfundi liggja mörg mikilvæg mál eins og fjáraukalög og sá skattapakki sem ríkisstjórnin hefur lagt fram. Ég hef ekki séð annað eins vinnulag í þinginu. Öll mál ríkisstjórnarinnar hafa komið svo seint fram að það má heita afrek ef við klárum þau fyrir jól svo vel sé að verki staðið. Ríkisstjórnin hefur ekki staðið sig í því að koma fram með sín mál á tilsettum tíma. Við höfum því boðið það í stjórnarandstöðunni að taka þessi mál á dagskrá þannig að hægt sé að koma þeim til nefndar og fara að vinna þau þannig að það sé þinginu til sóma. Stjórnarliðar neita því og mér þykir það miður því að við í stjórnarandstöðunni höfum lagt fram sáttarhönd hvað þetta varðar. (Forseti hringir.) Svo vil ég að lokum gera þá athugasemd við fundarstjórn forseta að hún er hlutdræg þegar kemur að frammíköllum stjórnarliða eða stjórnarandstæðinga því að hún gerir ekki miklar athugasemdir þegar hennar eigin flokksmenn kalla fram í.