138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[13:39]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að lýsa ánægju minni og þakka formanni fjárlaganefndar fyrir það, sem kom fram í ræðu hv. þingmanns, að hafa óskað eftir því við stjórnspekinga, eins og hv. þingmaður orðaði það, að skoða með stjórnarskrárhlutann, það er mjög mikilvægt að það sé gert. (KÞJ: Það var ríkisábyrgð.) Eða ríkisábyrgð, þann hluta varðandi ríkisábyrgðina. Ég vona svo sannarlega að málið fái góða efnislega umfjöllun í nefndinni en verði ekki afgreitt með hraði þar í gegn.

Frú forseti. Mig langar til að velta upp við hv. þingmann máli sem ég hef verið að spyrja um. Eitt af því sem ég hef persónulega miklar áhyggjur af varðandi þennan samning og get m.a. ekki samþykkt hann þess vegna — þó að það séu svo sem mörg önnur atriði — er sú óvissa sem er í samningnum, þessi opni tékki, sem verður samþykktur gangi þetta eftir. Tékki sem mun lenda á börnum okkar og barnabörnum og mögulega enn þá lengra fram í framtíðina, því þetta er í raun óendanleg heimild sem verið er að veita og mun ráðast mikið af því hvernig okkur tekst að halda efnahag þjóðarinnar hvort við getum yfirleitt greitt þetta og staðið undir því. Hv. þm. Pétur H. Blöndal hefur t.d. bent á hættuna varðandi vexti í samningnum.

Mig langar að spyrja hv. þm. hvort sú óvissa sem þarna er geti verið ásættanleg fyrir þjóð sem á alla framtíð fyrir sér í að byggja upp öflugt og farsælt samfélag.