138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[14:07]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vil þakka upplýsingar um að funda eigi með þingflokksformönnum síðar í dag. Í gær biðum við býsna lengi hér í þinghúsinu eftir því að forseti Alþingis boðaði til slíks fundar.

Mig langar að koma því á framfæri við hæstv. forseta að ég sakna þess að sjá ekki forsætisráðherra við þessa umræðu. Ég veit ekki til þess að hún hafi neitt verið hér í þingsal frá því að umræðan byrjaði. Það kann að vera að hún sé í húsi en það væri mjög gott ef hún gæti verið hér í þingsalnum og hlustað á umræðuna og tekið þátt í henni.

Hæstv. fjármálaráðherra hefur staðið sína plikt með sóma og þakka ég honum fyrir það. Ég vildi gjarnan að höfuðpaur — nú fór ég kannski út fyrir línuna — að hæstv. forsætisráðherra verði hér og taki þátt í umræðunni.

(Forseti (SF): Forseti mun koma þessum skilaboðum á framfæri en hæstv. forsætisráðherra er skráður í hús.)