ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að ég er svolítið veik fyrir svona kenningum eins og 2000-kenningunni og 2012-kenningunni og slíku. Mér finnst það skemmtilegt efni í bíómyndir en ég er ekki alveg viss um hvort maður eigi að lifa í slíkum ótta sem er eins og spádómur. Kannski lifum við bara í einhverri völuspá þar sem hæstv. ríkisstjórn er orðin að völvu Íslands og spáir um alls konar heimsenda af ýmsu tagi sem þó enginn veit hvernig verður.
Ég verð að viðurkenna að ég held að það muni ekkert gerast, ekki neitt, ekki nokkur skapaður hlutur þann 1. desember nema að við munum væntanlega fagna þeim merka degi, en ég held að það muni ekkert skelfilegt gerast. Ég held jafnframt að við þurfum að hífa okkur út úr þessu. Ég finn voðalega mikið fyrir því hérna að það einhvers konar valdstjórnartæki að vera alltaf að ýta hlutum á miklum hraða sem veldur því að þeir eru ekki unnir nógu vel. Ég hef kallað eftir því og heyrt að margir þingmenn eru samþykkir því að við eigum ekki að vera með svona vinnubrögð eins og að skera á þingmál, þennan fræga þingmálahala og annað. Ég kalla eftir betri og vandaðri vinnubrögðum í kringum svona mál. Ég kalla eftir því að við hættum að særa fram einhver viðbrögð út frá ótta, það er ekki það sem við viljum, að vinna innan slíks ramma. Við viljum vinna þannig að við finnum fyrir samstöðu og hugrekki saman til þess að takast á við þau gríðarlega stóru og erfiðu verkefni sem eru fram undan. Við erum að fara að kljást við fjárlögin. Ég get ekki ímyndað mér að neinn hlakki til þess.