138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[15:28]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er sammála því sem hv. þingmaður sagði um vinnuna í sumar. Við skulum bara segja hlutina alveg eins og þeir eru, meiri hlutinn í sumar var ekki til staðar fyrir þessu máli og þess vegna kom þessi samstarfsvilji stjórnarflokkanna ekki til af góðu fyrir þá. Þeir voru ekki búnir að tryggja sér meiri hluta fyrir þessu máli sem betur fer í rauninni. Þetta munum við öll.

Nú er komið annað mál, algjörlega gjörbreytt, og í rauninni má segja að þingið hafi tekið málið tvisvar til sín. Þingið tók málið til sín fyrir tæpu ári þegar utanríkismálanefnd afgreiddi það frá sér með mjög skýrum viðmiðum, Brussel-viðmiðum, þar sem Evrópusambandið kom inn í. Frakkarnir lögðu mikla vinnu í að reyna að draga fram þessi Brussel-viðmið þannig að það komu alveg skýr skilaboð frá þinginu um hvernig samninganefndin ætti að vinna, miðað við erfiða stöðu Íslands. Síðan tekur þingið í annað sinn málið til sín, tekur í rauninni forræðið af framkvæmdarvaldinu. Þá sögu þekkjum við, það var í sumar og við settum inn þessa efnahagslegu fyrirvara.

Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að Framsókn tók nokkurn þátt í því að vinna málið í sumar að einhverju leyti, hvort hún telji að niðurstaða málsins hefði orðið betri ef framkvæmdarvaldið hefði tekið stjórnarandstöðuna með sér í þann leiðangur að fara að ræða aftur við Breta eftir afgreiðslu málsins í sumar. Telur hv. þingmaður að niðurstöður og lyktir málsins hefðu orðið farsælli ef ríkisstjórnin hefði haft dug í sér til að hugsa málið þverpólitískt og láta í rauninni alla flokka axla þá ábyrgð að ræða við Hollendinga og Breta á grundvelli þeirra laga sem við höfum nú þegar samþykkt?