138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[17:19]
Horfa

Forseti (Árni Þór Sigurðsson):

Forseti getur upplýst að hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra var viðstaddur umræðuna í morgun. Forseti gerði jafnframt könnun á því hvort hægt væri að fá ráðherrann í hús áðan vegna fyrirspurnar þar um en forseti verður að viðurkenna að honum er ekki kunnugt um ferðir efnahags- og viðskiptaráðherra að öðru leyti.