ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Við erum á laugardagskvöldi fyrsta í aðventu jóla að funda um vissulega mjög mikilvægt málefni sem stjórnarandstaðan hefur ákveðið að ræða til þrautar og fylgja eftir af öllum þeim þunga sem við getum. Ég minnist þess að þegar virðulegur forseti var kjörin á sínum tíma hafði hún uppi þau orð að hún ætlaði sér að vera forseti allra þingmanna og forseti þingsins, hún hafði uppi stór orð um það. Ég vil skora á virðulegan forseta að sýna þinginu og þingmönnum þá virðingu að gera grein fyrir því hvað hún hefur hugsað sér að halda (Forseti hringir.) lengi áfram störfum fram eftir nóttu. Við skorumst ekki undan þeirri ábyrgð að taka þátt í þessari umræðu en það er lágmarkskrafa og lágmarksvirðing (Forseti hringir.) sem virðulegur forseti getur sýnt þinginu og þeim þingmönnum sem ætla að taka þátt í umræðunni að taka ákvörðun um það hversu lengi skuli unnið áfram.