138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[19:55]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess að forseti fór yfir þessa grein í þingsköpunum með starfsmönnum þingsins og túlkun þeirra er sú að ekki þurfi að biðja um kvöldfund þegar ekki er reglulegur fundur og hefur sú grein verið túlkuð þannig.