138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[20:44]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég legg svo til að þessum fundi verði frestað. Við erum tilbúin, þingflokksformenn, að eiga fund með forseta ef fundinum verður frestað. Það er alveg ljóst, samkvæmt þeim lagaskýringum og þeim lögum sem um þennan fund gilda, að þetta er ólöglegur fundur.