138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[20:46]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S) (um fundarstjórn):

Forseti. Það er augljóst að lögskýringargögnin leiða okkur áfram þegar ágreiningur verður eins og hér hefur orðið. Eins og hér hefur komið fram þegar menn hafa lesið upp úr lögskýringargögnunum stendur eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Með frumvarpinu er stefnt að því að fækka kvöld- og næturfundum þannig að þeir heyri til undantekninga. Ef ekki eru sammæli milli þingflokka um að fundir standi fram á kvöld (eða nótt) til að ljúka ákveðnum málum þarf sérstakt samþykki þingsins til þess að svo verði.“

Síðan er punktur. Það stendur t.d. ekki: Þó gildir þetta ekki ef um er að ræða óreglulega fundi.

Ef það ætti að komast að þeirri niðurstöðu að þessi lögskýring ætti ekki við óreglulega fund hefði það að sjálfsögðu, frú forseti, verið tekið sérstaklega fram. Þetta er löggjafarsamkundan hér. Hér erum við að setja lög og ef við getum ekki farið eftir anda laga og þeim lögskýringargögnum sem liggja til grundvallar og eru alveg skýr en ætlum að láta embættismenn þingsins sjá um hvernig lög eru túlkuð hérna býð ég ekki í framhaldið á þingstörfunum.