tilhögun þingfundar.
Frú forseti. Ég vil ítreka að það er mikilvægt að góð sátt náist um það hvernig við högum þingstörfum. Þess vegna hefði farið betur á því að forseti hefði kallað þingflokksformenn saman til fundar í morgun, rætt tilhögunina áður en kæmi til atkvæðagreiðslu. Það er enn á ný verið að stefna störfum þingsins og þinghaldinu í fullkomna ósátt og átök og þetta er ekki rétti tíminn fyrir okkur Íslendinga til að standa í slíkum átökum á þingi. Hér stendur enn tilboð stjórnarandstöðunnar til stjórnarliða um að færa til Icesave-málið, geyma það á meðan við erum að taka önnur brýn mál, og hefja síðan áfram umræður um Icesave-málið. Við reynum að vinna það eins hratt og hægt er en tryggjum að mál sem snúa t.d. að fjárlögum og öðru slíku sem brýna nauðsyn ber til að klára sem fyrst hafi framgang í þinginu. Enn á ný skora ég á forseta að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna um hvernig hér er farið fram en ekki að beita þessu ofbeldi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)